- Published on
Vocal Project ætlar að halda jólastyrktartónleika í Guðríðarkirkju þann 15. desember næstkomandi og koma áhorfendum í hið eina sanna jólaskap. Tónleikarnir verða jólagjöf kórsins til áhorfenda með sérstakri þökk til ykkar sem hafið stutt okkur og mætt á tónleika í gegnum árin og því verður frítt inn á meðan húsrúm leyfir.
Ef áhorfendur vilja svo styrkja gott málefni mun kórinn taka við frjálsum framlögum á tónleikunum, sem renna óskipt til Píeta samtakanna.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í hátíðarskapi í Guðríðarkirkju, 15. desember kl 20:00.
Um Píeta Samtökin:
Í svartasta myrkri vetrarins er margt sem herjar á innri frið. Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfskaða auk þess að veita aðstandendum stuðning. Starfsemin er rekin að fyrirmynd Pieta House á Írlandi og býður upp á viðtöl og stuðningshópa fyrir 18 ára og eldri. Hjálparsími samtakanna er opinn allan sólarhringinn.
Það er alltaf von.