Haustið er komið
Raddprufum er nú lokið þennan veturinn og við erum mjög ánægð að hafa fengið 11 nýja stráka í kórinn, þar sem við viljum alltaf hafa þéttan og góðan botn í tónlistinni okkar.
Við höldum því glöð inn í haustið, og hlökkum til næstu tónleika sem verða laugardaginn 23. janúar!
Nánari upplýsingar koma síðar. 🥳
Vocal Project er stór hópur söngfugla sem lætur helst til sín taka á rythmíska sviðinu. Kórinn heldur reglulega tónleika á höfuðborgarsvæðinu, ýmist rafmagnaða eða órafmagnaða, með eða án undirleiks. Tónleikar Vocal Project hafa verið vel sóttir og oft komast færri að en vilja.