Ljós, kamera, aksjón!
Vocal Project - poppkór Íslands fagnar sumrinu með geysihressum tónleikum í Gamla Bíói. Í þetta skiptið er innblásturinn hvorki meira né minna en Hollywood og Broadway. Frá gömlum klassískum slögurum úr Mary Poppins, Les Misérables og West Side Story til nýklassíkera úr smiðju Tim Minchin, Lin-Manuel Miranda og Billie Eilish getum við lofað því að þið fáið ekki færri en fimm lög á heilann!
Einnig verða á dagskrá þau lög sem við munum flytja í kórakeppninni Cracovia Cantans í Kraká í sumar. Við höfum lagt hart að okkur við æfingar fyrir þessa keppni og hlökkum til að leyfa ykkur að heyra.
Miðasala er hafin á Tix:
https://tix.is/is/event/17233/ljos-kamera-aksjon-/

Vocal Project er stór hópur söngfugla sem lætur helst til sín taka á rythmíska sviðinu. Kórinn heldur reglulega tónleika á höfuðborgarsvæðinu, ýmist rafmagnaða eða órafmagnaða, með eða án undirleiks. Tónleikar Vocal Project hafa verið vel sóttir og oft komast færri að en vilja.